Meðalafgreiðslutími Umsókna
Áætlaður afgreiðslutími umsókna
Ríkisborgarar utan EES
- Afgreiðslutími getur verið allt að 90 dagar.
- Afgreiðslutími getur hins vegar verið mismunandi og fer það meðal annars eftir álagi hverju sinni hjá stofnuninni.
- Vel útfyllt umsókn ásamt fullnægjandi gögnum getur flýtt afgreiðslu til muna.
Ath. að um meðalafgreiðslutíma er að ræða.
Til að afgreiðsla umsóknar gangi sem hraðast fyrir sig er æskilegt að:
- fylla umsókn út vel og vandlega og skila inn í frumriti.
- ganga úr skugga um að öll fylgigögn séu til staðar.
- betra er að bíða með að skila inn umsókn þar til öll gögn liggja fyrir.
- Eftirfarandi er listi af gögnum sem þurfa að koma í frumriti/staðfest afrit af frumriti:
- sakavottorð ( tökum aðeins við frumriti).
Vakin er athygli á því að bandarískir ríkisborgarar og þeir einstaklingar sem búsettir hafa verið í Bandaríkjunum undanfarin 5 ár sem hyggjast sækja um dvalarleyfi á landinu, þurfa að skila inn sakavottorði frá því fylki sem þeir hafa verið búsettir í síðastliðin 5 ár.
- forsjárgögn
- fæðingarvottorð
- skilnaðargögn
- heilbrigðisvottorð
- hjúskaparvottorð
- vottorð um staðfesta samvist
- vottorð um skráða sambúð
- dánarvottorð
- framfærsla
Umsókn sem er skilað inn ásamt öllum fylgigögnum er sett í forgang.
Ef fullnægjandi gögn eru ekki til staðar þá lengist afgreiðslutími umsókna umtalsvert.

