Útlendingar búsettir á Íslandi á ferðalögum

Reglur sem gilda um útlendinga sem hafa dvalarleyfi á Íslandi í ferðum á Schengensvæðinu.

Ríkisborgarar frá ríkjum sem taka þátt í Schengen samstarfinu.


Ríkisborgarar frá ríkjum sem taka þátt í Schengen samstarfinu, eru búsettir á Íslandi og vilja ferðast um Schengensvæðið, skulu hafa undir höndum vegabréf eða önnur viðurkennd ferðaskilríki á ferðum sínum.

Borgarar annarra ríkja.


Útlendingar, sem ekki eru frá ríkjum sem taka þátt í Schengen samstarfinu og hafa gilt dvalarleyfi á Íslandi, geta ferðast og dvalist á Schengensvæðinu, í  einu eða fleiri ríkjum þess, í samanlagt þrjá mánuði á hverju sex mánaða tímabili. Tekur þetta bæði til ríkisborgara þeirra ríkja, er ella þyrftu vegabréfsáritun sem og þeirra, er ekki þurfa vegabréfsáritun. Útlendingur skal hafa gilt ferðaskilriki/vegabréf og dvalarleyfi meðferðis.

Sömu skilyrði gilda um börn og ungmenni undir 18 ára aldri.

Þau íslensku leyfi sem veita framangreindan rétt eru:

  • Skírteini útgefin af Útlendingastofnun (áður Útlendingaeftirlit)
  • Skírteini útgefin af Utanríkisráðuneytinu.

 



 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.