Áritanir
Áritanir
Þann 25. mars 2001 gerðist Ísland aðili að Schengen-samstarfinu. Það er samstarf 25 ríkja og miðar að því að tryggja frjálsa för fólks innan Schengen svæðisins. Þetta eru auk Íslands, Finnland, Svíþjóð, Danmörk, Noregur, Þýskaland, Belgía, Sviss, Frakkland, Lúxemborg, Holland, Ítalía, Austurríki, Spánn, Portúgal, Grikkland, Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Slóvakía, Tékkland, Ungverjaland, Slóvenía og Malta.
Allir áritunarskyldir einstaklingar sem ekki hafa gilda Schengen áritun í ferðaskilríki sínu þurfa að sækja um vegabréfsáritun áður en komið er inn á Schengen svæðið og til landsins í viðkomandi sendiráði. Ísland hefur fjölda erlendra sendiráða sem eru í fyrirsvari fyrir landið.
- Hverjir þurfa ekki áritun til Íslands?
- Hvernig er sótt um vegabréfsáritun?
- Í hvaða sendiráðum er hægt að sækja um vegabréfsáritun?
- Reglur sem gilda um útlendinga sem búsettir eru á Íslandi á ferðalögum.

