Sjúkratrygging ef umsókn er samþykkt
Sjúkratrygging
Frá og með 1. júní 2004 er þess krafist að umsækjendur um vegabréfsáritanir til Íslands hafi aflað sér ferða/sjúkrakostnaðartryggingar. Allir umsækjendur um Schengenáritanir þurfa að afla sér trygginga, áður en áritun er afgreidd. Bótafjárhæð skal vera að lágmarki 30 000 EVRUR .
Tryggingin skal taka til lækniskostnaðar, neyðarvistunar á sjúkrahúsi og flutnings til heimalands vegna sjúkdóma.
Þau sendiráð sem fara með fyrirsvar fyrir Íslands hönd í áritunarmálum annast framkvæmd þessa.

