Framfærsla
Framfærsla
Útlendingur þarf að sýna fram á að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem ætlunin er að dvelja á Schengen svæðinu. Miðað er við lágmarks fjárhæð 20.000 ISK eða 4.000 ISK fyrir hvern dag sem að óskað er eftir að dveljast á Schengen svæðinu en 2.000 ISK á dag ef útlendingur er þegar kominn með öruggt húsnæði t.d. gistir í heimahúsi. Sýna þarf fram á framfærslu í gjaldmiðli samþykktum af Seðlabanka Íslands. Athugið að gestgjafi getur ekki ábyrgst framfærslu útlendings nema um sé að ræða ólögráða börn, maka eða foreldra gestgjafa.

