Ferðaskilríki

Ferðaskilríki

Umsækjandi verður að hafa gilt og viðurkennt ferðaskilríki við komu og brottför til og frá Íslandi og annarra Schengen-ríkja. Ferðaskilríkið verður að gilda a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til.  Umsækjandi verður einnig að hafa heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar.  Þau kennivottorð sem viðurkennd eru sem ferðaskilríki í stað vegabréfs við komu til Íslands og brottför eru að finna í viðauka 2 í reglugerð um útlendinga.



 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.